Framhjáhald, hjónaskilnaðir, kynsvall, makamorð. Og allt gerðist þetta í sænskum hvítasunnusöfnuði. Handrit að afþreyingarmyndaflokki í sjónvarpinu hefði varla getað verið magnaðra, furðulegra né ólíklegra. En þetta var veruleiki! Atburðarásin í Knutby, sem náði hámarki með morði og morðtilraun í janúarmánuði 2004, opnaði nýjar gáttir í sænskri afbrotasögu; í ljós kom að ungt fólk, sem virtist vera á góðu róli félagslega og var þar að auki tengt innbyrðis af sterkri trúariðkun, reyndist töluvert öðru vísi en virtist við fyrstu sýn. Og lykilinn að þessu þekkjum við: Haustið 2004 var sálnahirðir safnaðarins dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að hafa myrt seinni konu sína. Hins vegar var hann sýknaður af ákæru um að hafa myrt fyrri eiginkonu sína sem lést við dularfullar aðstæður árið 1999. Hér skýra rannsóknarlögreglumenn frá atburðarásinni.