Fjórir ungir menn frá bænum Galati í norðausturhluta Rúmeníu hittust á óþekktum stað á Ítalíu og sammæltust þar um að fara saman í skemmtiferð. Það er óljóst hvort þeir ætluðu sér til Danmerkur en þar enduðu þeir. Enginn þeirra var með peninga meðferðis þegar þeir fóru frá Ítalíu eða þá að peningarnir voru búnir þegar þeir komu til bæjarins Torgau í Þýskalandi þar sem þeir frömdu tíu innbrot og stálu BMW-bifreið. Þeir höfðu komist yfir lykla að bifreiðinni í einu innbrotinu.