Categorias Ver Todas >

Audiolivros Ver Todos >

E-books Ver Todos >

Bandamanna saga 

Bandamanna saga 

Sinopse

Bandamanna saga er eina Íslendingasagan sem öll gerist eftir söguöld eða skömmu eftir 1050. Hún gerist að mestu í Miðfirði í Húnaþingi og svo á alþingi á Þingvöllum. Verkið fjallar um feðgana Ófeig Skíðason og Odd son hans. Sá yngri varð auðugur af verslun og keypti sér jörð á Mel í Miðfirði ásamt því að kaupa sér þar goðorð. Lendir hann svo í hinum ýmsu vandræðum þar sem faðir hans kemur honum til bjargar. Bandamanna saga er sögð á gamansaman hátt en deilir um leið á stétt höfðingja.Frásögnin er merkileg fyrir þær sakir að hún er varðveitt í bæði Möðruvallabók og Konungsbók. Útgáfurnar tvær eru ekki eins að öllu leyti og er sú sem finnst í Möðruvallabóktöluvert lengri en hin, sem dæmi. Skiptar eru skoðanir fræðimanna á því hvor útgáfan hafi komið á undan.