Drengskapur í leik er grundvöllur allrar íþróttaiðkunar og ekki leikur vafi á að einmitt sá grundvöllur á stóran þátt í að hrífa alla heimsbyggðina með sér. Mikil- vægi íþrótta í uppeldi, spennu og sanngjarnri keppni hefur farið vaxandi í áraraðir og mikilvægið hefur vaxið með þróun nútíma fjölmiðlasamfélags. Knatt- spyrna hefur oft verið í fararbroddi með ýmsar nýjungar til að gleðja þá fáu sem eru nógu heppnir til að vera á áhorfendapöllunum og þær milljónir manna um allan heim sem setjast fyrir framan sjónvarpið þegar útsendingar byrja.